Karfan þín er tóm

Upplýsingar um vöru

Vörunúmer: WEB_THKL_SINK

Sink hefur verðið notað í aldaraðir til að klæða þök og veggi. Sinkið hefur ótrúlega endingu og er almennt talað um að endingartíminn sé a.m.k. hundrað ár.

Arkitektar og húseigendur hafa í gegnum tíðina hrifist af eiginleikum sinksins. Á yfirborð sinksins myndast náttúruleg patína sem ver efnið og myndar fallegan náttúrulegan lit. Hægt er að fá sinkið forveðrað. Auðvelt er að forma sink í nánast hvaða form sem er.

Áltak hefur undanfarin ár haldið námsskeið fyrir blikksmiði í sinkklæðningum og því er til í landinu mikil verkþekking varðandi klæðningar með sinki.

Áltak getur verið arkitektum og hönnuðum innan handar við allar útfærslur, við eigum mikið magn teikninga og deililausna, auk þess sem við erum í sambandi við færustu hönnuði hjá VM ZINC®. Okkar markmið varðandi sinkið er eins og á öðrum sviðum er að veita heildarlausnir sem virka miðað við íslenskar aðstæður.

Þakklæðningar
VM ZINC® hentar afburðavel sem þakklæðning á öll þök allt niður í 5° þakhalla. Áltak býður allt sem til þarf varðandi læstar þakklæðningar, allar festingar, undirlag, teikningar, ráðgjöf og verklýsingar.

Eiginleikar
Nafn eiginleika Gildi eiginleika
Tegund Þakklæðning
Gerð Sinkklæðning
Efnisgerð Sink

EAB Torx skrúfur 7mm

Heitgalvanhúðaðar skrúfur fyrir EAB hillukerfi.
Lengd: 7mm
Vörunúmer: SI125017
110 kr.
Til á lager