Leita

Leita á vefsíðu

Kasettuklæðningar

Kasettuklæðning gefur byggingum hreint, agað yfirbragð þar sem sléttar álplötur mynda samfellda, vandaða flöt. Plöturnar eru beygðar inn að gluggum og um öll úthorn, sem skilar nákvæmum og fáguðum frágangi — endingargóð álkápa hönnuð fyrir íslenskar aðstæður.

Hafa samband

Kasettuklæðning frá Áltaki er úr sléttum álplötum sem hnoðaðar eru á álundirkerfi. Plöturnar eru beygðar inn að gluggum og um öll úthorn, sem gefur byggingunni heilsteypt og fágað útlit þar sem umgjörð glugga og horn eru unnin af nákvæmni. Festingar eru ávallt sýnilegar og verða hluti af hreinu, reglulegu útliti klæðningarinnar.

Kostir:

  1. Sléttar álplötur — nútímalegt, agað yfirbragð
  2. Nákvæmur frágangur — beygt inn að gluggum og um úthorn
  3. Sýnilegar festingar — reglulegt, hreint mynstur í fletinum
  4. Ál sem endist — ryðgar ekki, heldur útliti í roki, rigningu og seltu
  5. Fjölbreytt litaval — lagað að hverju verkefni

Kasettuklæðningar frá Áltaki sameina einfaldleika og nákvæmni — vönduð álkápa sem gefur byggingum hreint og tímalaust yfirbragð.

Gagnlegar upplýsingar

Tegund

Veggklæðning

Gerð

Kasettuklæðning

Undirgerð

Álklæðning

Efnisgerð

Ál

Verkefni

Hafa samband

Þessi síða er vernduð af reCAPTCHA og persónuverndarstefna og þjónustuskilmálar Google gilda.