Hvers vegna ál?
Ál hefur sannað sig sem allra endingarbesta efnið fyrir þök og klæðningar við íslenskar aðstæður. Kostirnir eru fjölmargir og má þar nefna að ál ryðgar ekki og heldur þannig útliti sínu. Ál er líka létt að vinna, þ.e. forma og saga, sem auðveldar alla uppsetningu. Þá vegur umhverfisþátturinn þungt, en endurvinna má allar okkar álklæðningar 100%, sem gerir álið að mjög vistvænum kosti sem getur alltaf fengið framhaldslíf. Talið er að 75% af öllu áli sem framleitt hefur verið í heiminum sé enn í notkun.
Hafa sambandHvers vegna ál?

Hafa samband

Einfalt form, sterk hönnun og skýr heildarmynd
Álklæðningarnar frá Novelis eru í hæsta gæðaflokki og spannar reynsla Novelis áratugi við íslenskar aðstæður með frábærum árangri.
Vinnsluhæfni Novelis áls er einstök. Formbeygðar klæðningar sameina einfaldleika og stílhreina hönnun og eru á sama tíma hagkvæmur kostur. Þær gefa byggingunni vandað yfirbragð og henta vel við íslenskar aðstæður.
Klæðningarnar eru framleiddar í þeim lengdum sem þarf, allt að 6,4 m, sem einfaldar uppsetningu og minnkar sóun. Klæðningarnar eru formbeygðar á Íslandi og því er afgreiðslutími stuttur, sem auðveldar skipulag hvers verks.
Formbeygðar klæðningar skapa skemmtilegtsamspil skugga og ljóss. Það lyftir heildarhönnun bygginga, sem gerir þær að vænlegum kosti fyrir fjölbreytt byggingarverkefni.
Klæðningarnar eru úr gegnheilu áli með fallegri áferð. Þær eru 100% endurvinnanlegar með A1-vottun (óbrennanlegt) og henta einstaklega vel við íslenskar aðstæður, þar sem veðurfar og umhverfiskröfur krefjast hágæða lausna.

Stuðlagil
Stuðlagil er samsett úr misháum, beygðum einingum þar sem hver eining minnir á stuðlaberg. Formið skapar sterka ásýnd, með áberandi dýpt og náttúrulegum karakter.
Stuðlagil
Stuðlagil er samsett úr misháum, beygðum einingum þar sem hver eining minnir á stuðlaberg. Formið skapar sterka ásýnd, með áberandi dýpt og náttúrulegum karakter.

Esja
Esja er sveigjanleg klæðningarlausn þar sem einingar í mismunandi breiddum skapa einfalda, nútímalega og samræmda heild. Fjölbreytt form skapa slétta og lifandi ásýnd, sem hentar vel á flestar byggingar.

Látrabjarg
Látrabjarg er form með óreglulegum súlum, sem skapa mjúkt en líflegt yfirborð. Formið gefur byggingunni dýpt og karakter án þess að vera yfirgnæfandi.
Látrabjarg
Látrabjarg er form með óreglulegum súlum, sem skapa mjúkt en líflegt yfirborð. Formið gefur byggingunni dýpt og karakter án þess að vera yfirgnæfandi.

Keilir
Beygð form í mismunandi gráðum skapa dýpt og hreyfingu þar sem ljósið leikur sér að yfirborðinu. Útkoman er margbreytilegt samspil ljósra og dekkri litbrigða sem breytist eftir sjónarhorni og birtu.

Hraundrangar
Hraundrangar er óreglulegt form, með mjóum en sterkum röndum milli panela sem skapa skýran takt og spennu í yfirborðinu. Útkoman er kraftmikil og hrá ásýnd með skírskotun í íslenskt hraunlandslag.

Askja
Askja er látlaus og fáguð lausn sem einkennist af áreynslulausri ásýnd. Lausnin skapar mjúkt yfirbragð og gefur byggingunni þægilega heildarsýn.
Skjöl
Formbeygðar klæðningar
formbeygðar
veggklæðningar
Litir í boði
formbeygðar
litir