
Báruklæðningar á þök
Áltak valsar báruklæðningar á þök úr lituðu áli og ólituðu Aluzinki hér heima. Íslensk framleiðsla þýðir styttri afgreiðslutíma, meiri sveigjanleika og þakkápu sem er hönnuð fyrir íslenskar aðstæður frá fyrstu plötu. Álið ryðgar ekki, heldur útliti sínu og ver þakið í roki, rigningu og seltu — áratugum saman með lágmarks viðhaldi.
Íslensk framleiðsla sem stenst íslenskt veður
Bára er klassísk og hagkvæm þaklausn sem hentar jafnt íbúðarhúsum, atvinnu- og iðnaðarbyggingum. Formin gefa þakinu áferð og karakter, og álið tryggir langan líftíma.
Þrjú form eftir útliti og áferð:
Klassísk bára (18/76) — tímalaus og fjölhæf
Stór bára (28/128) — kröftug form fyrir stóra þakfleti
Stölluð bára (33/175) — mjúk, lifandi hreyfing
Álið er 0,7 mm og fæst í þeim lengdum sem henta þínu þaki; flasningaefni koma í 0,7 / 1,0 / 2,0 mm. Afgreiðslutími er aðeins 2–4 dagar.
Einnig framleiðum við kúlukili, skotrennur og snjógildrur í sama lit.
Báruþök frá Áltaki er sterk, endingargóð og hagkvæm lausn.



Tegund
Þakklæðning
Gerð
Báruklæðning
Undirgerð
Novelis
Þykkt
0,7/1,0/2,0 mm
Vörunúmer
WEB_THKL_BRKL
Skjöl
Kúlukilir og skotrennur
Snjógildrur
Rothoblaas þak samsetning