Doka Staxo 100 turnakerfi
Turnakerfið frá Doka heitir Staxo — bæði fljótlegt og þægilegt í notkun. Burður er 6 tonn á löpp eða 24 tonn á turn, hæðin er ekki vandamál og allar útfærslur eru í boði.
Dokadek 30 undirsláttarkerfi
Dokadek 30 er létt undirsláttarkerfi sem auðvelt er að setja upp með handafli. Flekarnir koma í tveimur stærðum — 2,44 × 1,22 m og 2,44 × 0,81 m — sem gerir kerfið fljótlegt og meðfærilegt á verkstað.
Dokaflex 1-2-4 stoðakerfi
Dokaflex 1-2-4 er einfalt og fljótlegt stoðakerfi sem margir þekkja. Áltak á til á lager allt sem þarf í undirslátt. Stoðirnar bera 2 tonn í öllum lengdum, sem þýðir að færri stoðir þarf í hvert verk — það sparar bæði vinnu og flutning.


