Karfan þín er tóm

Upplýsingar um vöru

Vörunúmer: WEB_ECOPHON_SOMBRA

Frábærar einfaldar lausnir fyrir hljóðvist fyrir heimili, skrifstofur, sjúkrahús og nánast hvað sem er.

Ecophon framleiðir allar útfærslur af kerfisloftum og eru bogaloftin frá þeim sérstaklega skemmtileg.

Ecophon loftaefnið er rykfrítt hágæða hljóðdeyfiefni framleitt úr rakaheldri glerull umvafinni glertrefjadúk sem er sprautaður með hljóðdeyfimálningu á sýnilegum fleti. Ecophon plöturnar eru prófaðar af sænsku astma og ofnæmissamtökunum og fá þeirra meðmæli, einnig eru Ecophon vörur prófaðar af Danska gæðaeftirlitinu sem setur þær í sinn besta flokk. Ecophon hefur fengið vottun frá Norrænu Umhverfissamtökunum. Allar lofta- og veggjaplötur sem framleiddar eru hjá Ecophon eru í mjög lágum rykkornaflokk.

Óteljandi möguleikar
Ecophon framleiðir nokkur loft sem henta vel fyrir rakarými t.d. iðnaðareldhús, drykkjar- og matvælaiðnað,frístundir (sundlaugar, sturtur ofl.) , raftækjaiðnað, skrifstofur, menntastofnanir, verslanir, veitingastaði, samkomusali, sjúkrahús, göngudeildir og margt fl.
Þegar ákveða skal hvaða hljóðvist hentar tilteknu rými þá er best að hafa eftirfarandi í huga:

- Hvaða starfsemi fer fram í rýminu
- Hverskonar hljóðdempun er hentugust
- Tegund rýmis

Yfirborð og litir
Ecophon eru glerullarplötur sem eru með Akutex yfirborði sem er mjög sterkt og þolir vikulegan þvott með rökum klút og einnig má ryksuga þær.Þær hafa mjög gott hljóðísog, með því betra sem gerist. Stærðir, litir og möguleikar á upphengikerfi eru ótrúlega miklir.

Eiginleikar
Nafn eiginleika Gildi eiginleika
Tegund Kerfisloft
Gerð Ecophon
Undirgerð Sombra
Þykkt 15 mm
Breidd 600-1200 mm
Lengd 600 mm

EAB gaflplata 1000x300mm

Heitgalvanhúðu gaflplata fyrir EAB hillukerfi.
Breidd: 300mm
Hæð: 1000mm
Vörunúmer: SI125027
2.672 kr.
Til á lager

BL 10 handvirk slá

BL 10 handvirk slá frá Automatic Systems.
Hentar sem lokun þar sem lítil umferð er.
Vörunúmer: WEB_BL10
Senda fyrirspurn fyrir þessa vöru: