|
|
|
|
|
|
|
|
|

Utanhússklæðningar, undirkerfi ofl.
Áltak ehf. hefur undanfarinn áratug sérhæft sig í álklæðningum og undirkerfum fyrir álklæðningar, við erum umboðsaðilar fyrir Alcan-Novelis ál-klæðningarplötur sem eru marg- viðurkenndar fyrir einstök gæði í yfirborðslit. Yfirburðirnir felast í PVDF litarhúð sem er einstaklega veður- og álagsþolin auk þess sem liturinn þolir sólarljós einstaklega vel og heldur sér nánast óbreyttur í áratugi við erfiðustu aðstæður.
Áltak hefur alla tíð einbeitt sér að því að útvega tæknilega réttar heildarlausnir og býður því allt sem til þarf varðandi utanhúsklæðningar. Undirkerfin eru úthugsuð þannig að hvergi séu notuð óskyld efni sem geta valdið tæringu. Margar útfærslur, þykktir, litir og form eru í boði. Einnig erum við með samlokuálklæðningar frá Alpolic og Alucobound, sem eru plötur byggðar úr tveim álþynnum með óbrennanlegum plastkjarna á milli.
Áltak er auk þess umboðsaðili fyrir VM ZINK og bíður heildarlausnir varðandi zinkklæðningar, undirkerfi og festingar. Ál og Zink eru efni sem lengi hafa verið notuð í utanhúss- og þakklæðningar. Ál og zink hafa gríðarlega langann endingatíma og er því mjög mikilvægt að allt undirkerfi og uppsetning sé í hugsuð með áratuga jafnvel árhundruða endingu efnanna í huga.
Eftir kaup á Íslenska verslunarfélaginu í ágúst 2006, bættust við nokkur gæða vörumerki sem falla vel að þeim utanhúsefnum sem Áltak hefur sérhæft sig í. Má þar nefna samlokueiningar, þakklæðingar og veggjaeiningar frá TyssenKrupp, Áltré-gluggar frá Kastrup í Danmörku, þakgluggar og kúplar frá Hetag og Lumex en fyrir var Áltak með hina vönduðu þakglugga frá FAKRO auk Colt – reyklosunarbúnaðar og búnaðar fyrir daglega opnun og loftræstingu.
Tæringartafla
|
|
|
| Áltak ehf | Fossaleynir 8 | 112 Reykjavík | kt: 510297-2109 | sími: 577 4100 | fax: 577 4101 | altak@altak.is |  |
|