|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Áltak hefur nú gert samning um sölu á hinum þekktu stálgrindarhúsum frá Astron. Astron hefur verið leiðandi í framleiðslu á stálgrindarhúsum um áratuga skeið. Mörg hús frá Astron eru til á Íslandi og má þar að nefna Saltfisksetrið Grindavík, BogL húsið, Norðlingbraut 1(Mesthúsið) og Fraktmiðstöð Icelandair sem segja allt um gæði húsana. |
|
Nánar...
|
|
|
|
|
|
|
|
Áltak ehf kemur frá og með miðvikudeginum 1. Apríl að fara eftir CIP áhættumati Creditinfo Ísland við mat á áhættutengdum reikningsviðskiptum. |
|
Nánar...
|
|
|
|
|
|
|
|
Við horfum fyrst og fremst á gæðin og endinguna, samfara þessum atriðum eru þó óneitanlega glæsileiki og formfegurð.
Við leggjum metnað okkar í að bjóða heildarlausnir, við seljum því allt sem þarf til að ljúka verkinu á réttan hátt þannig að tryggt sé að öll efni eigi rétt saman og ekki komi til tæringar eða skemmda síðar vegna rangrar efnisnotkunar.
Í utanhúsklæðningunum eru klæðningarnar frá Alcan-Novelis, með sinni einstöku PVDF litarhúð, ásamt viðeigandi undirkerfum vinsælastar. Auk álklæðninga frá Alcan-Novelis erum við með samlokuálklæðningar frá Alpolic og Alucobound. Áltak er einnig umboðsaðili fyrir VM ZINK og KME kopar, við bjóðum heildarlausnir varðandi zink- og koparklæðningar, undirkerfi og festingar. Árið 2006 keypti Áltak Íslenska verslunarfélagið ehf. og bíður nú vörulínu þeirra, m.a. þekkt merki í kerfisloftum, kerfisveggjum, tölvugólfum, innihurðum, gluggum ofl.
Sérhæft starfsfólk Áltaks er ávallt til reiðu varðandi útfærslur og lausnir á hinum ýmsu byggingarhlutum. Við einsetjum okkur að eiga ávalt á lager öll helstu efni og liti. Sérpöntun tekur einungis 4-6 vikur, ef menn vilja eitthvað alveg einstakt. Hér á heimasíðunni má kynnast öllum helstu vöruflokkum okkar og nálgast teikningar af mismunandi útfærslum. Við hvetjum þig til að hafa samband við okkur símleiðis, með tölvupósti eða að líta til okkar í sýningarsalinn Stórhöfða 33, við reynum að aðstoða á allan hátt.
Kynningarbæklingur |
|
|
|
|
|
| Áltak ehf | Fossaleynir 8 | 112 Reykjavík | kt: 510297-2109 | sími: 577 4100 | fax: 577 4101 | altak@altak.is |  |
|