LEBO innihurðir
Áltak hefur nú tekið við sölu á LEBO innihurðum af Parket og Gólf ehf.
Hurðirnar eru þýskar, yfirfeldar með samlokukörmum.
Boðnar eru þrjár gerðir á lager, eikarspónn, hvítlakkað og CPL-eik í flestum stærðum, einnig getum við boðið í sérpöntun ýmsar gerðir, t.d. fulningahurðir, hurðir með eða án glers, rennihurðir og glerhurðir. Bjóðum einnig B30 eldvarnarhurðir af lager.
LEBO hefur framleitt hurðir síðan 1871 og rekur þrjár verksmiðjur í Þýskalandi og Póllandi, ávallt hefur verið lögð mikil áhersla á gæði og vandaða framleiðslu hjá fyrirtækinu.
Stálgrindarhús frá Astron og Bogaskemmur frá J.Snoei
Áltak hefur nú gert samning um sölu á hinum þekktu stálgrindarhúsum frá Astron. Astron hefur verið leiðandi í framleiðslu á stálgrindarhúsum um áratuga skeið. Mörg hús frá Astron eru til á Íslandi og má þar að nefna Saltfisksetrið Grindavík, BogL húsið, Norðlingbraut 1(Mesthúsið) og Fraktmiðstöð Icelandair sem segja allt um gæði húsana.
Lesa meira...Tilkynning vegna reikningsviðskipta
Áltak ehf kemur frá og með miðvikudeginum 1. Apríl að fara eftir CIP áhættumati Creditinfo Ísland við mat á áhættutengdum reikningsviðskiptum.
Lesa meira...Áltak býður breiða línu af gæða byggingarvörum frá þekktum framleiðendum. Við sérhæfum okkur m.a. í utanhúsklæðningum, undirkerfum fyrir utanhúsklæðningar, kerfisloftum, kerfisveggjum, innihurðum, reyklúgum, reykræstibúnaði og brunakerfum, gluggum, hurðum, samlokueiningum, kerfisgólfum o.fl.
Markmið Áltaks er að bjóða eingöngu gæðavöru frá viðurkenndum framleiðendum.
Áltak
Við horfum fyrst og fremst á gæðin og endinguna, samfara þessum atriðum eru þó óneitanlega glæsileiki og formfegurð.
Við leggjum metnað okkar í að bjóða heildarlausnir, við seljum því allt sem þarf til að ljúka verkinu á réttan hátt þannig að tryggt sé að öll efni eigi rétt saman og ekki komi til tæringar eða skemmda síðar vegna rangrar efnisnotkunar.
Í utanhúsklæðningunum eru klæðningarnar frá Alcan-Novelis, með sinni einstöku PVDF litarhúð, ásamt viðeigandi undirkerfum vinsælastar. Auk álklæðninga frá Alcan-Novelis erum við með samlokuálklæðningar frá Alpolic og Alucobound. Áltak er einnig umboðsaðili fyrir VM ZINK og KME kopar, við bjóðum heildarlausnir varðandi zink- og koparklæðningar, undirkerfi og festingar. Árið 2006 keypti Áltak Íslenska verslunarfélagið ehf. og bíður nú vörulínu þeirra, m.a. þekkt merki í kerfisloftum, kerfisveggjum, tölvugólfum, innihurðum, gluggum ofl.
Sérhæft starfsfólk Áltaks er ávallt til reiðu varðandi útfærslur og lausnir á hinum ýmsu byggingarhlutum. Við einsetjum okkur að eiga ávalt á lager öll helstu efni og liti. Sérpöntun tekur einungis 4-6 vikur, ef menn vilja eitthvað alveg einstakt. Hér á heimasíðunni má kynnast öllum helstu vöruflokkum okkar og nálgast teikningar af mismunandi útfærslum. Við hvetjum þig til að hafa samband við okkur símleiðis, með tölvupósti eða að líta til okkar í sýningarsalinn Stórhöfða 33, við reynum að aðstoða á allan hátt.
Kynningarbæklingur